Erlent

Stormy Daniels frjálst að ræða samband sitt við Trump

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump og Stephanie Clifford, einnig þekkt sem Stormy Daniels.
Donald Trump og Stephanie Clifford, einnig þekkt sem Stormy Daniels. Vísir/Getty
Umboðsmaður klámmyndaleikkonunnar og leikstjórans Stormy Daniels, sem heitir réttu nafni Stephanie Clifford, segir hana geta „sagt sögu sína“ eftir að lögmaður Donald Trumps til langs tíma, Michael Cohen, viðurkenndi að hafa greitt henni 130 þúsund dali, um þrettán milljónir króna, árið 2016. Cliffor telur yfirlýsingu Cohen í gær brjóta gegn þagnarsamkomulagi þeirra um meint ástarsamband hennar og Trump árið 2006.

Donald Trump giftist þriðju eiginkonu sinni, Melaniu Trump, árið 2005 og framhjáhaldið á að hafa átt sér stað skömmu eftir að Melania fæddi Baron Trump, son þeirra hjóna. Clifford sagði frá sambandinu upprunalega í viðtali við InTouch árið 2011. Viðtalið var þó ekki birt fyrr en í síðasta mánuði þar sem Cohen hótaði því árið 2011 að höfða mál gegn tímaritinu.

Fregnir bárust af því í síðasta mánuði að Cohen hefði greitt Clifford 130 þúsund dali í aðdraganda forsetakosninganna 2016 í skiptum fyrir þögn hennar. Hún mun þá hafa átt í viðræðum við forsvarsmenn ABC sjónvarpsstöðvarinnar um að koma fram og segja frá framhjáhaldinu.

Sjá einnig: Lögmaður Trump segist hafa borgað klámmyndaleikkonu úr eigin vasa.

Tilefni ummæla Cohen er að yfirkjörstjórn Bandaríkjanna og Dómsmálaráðuneytið hafa verið beðin um að kanna hvort að greiðslan hafi komið úr kosningasjóði Trump og hvort hún hafi verið ólögleg.

Gina Rodriguez, umboðsmaður Clifford, segir ljóst að ummæli Cohen hafi fellt samkomulag þeirra úr gildi og að skjólstæðingur sinn ætli að segja sögu sína. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×