Innlent

Áhyggjufullir vinir Jóhanns gerðu þýsku lögreglunni viðvart

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Jóhann Jóhansson var eitt virtasta kvikmyndatónskáld síðari tíma.
Jóhann Jóhansson var eitt virtasta kvikmyndatónskáld síðari tíma. Vísir/GETTY
Umboðsmaður Jóhanns Jóhannssonar lét samstarfsmann sinn í Berlín athuga með Jóhann eftir að tónskáldið hafði ekki haft samband í einn dag. Eftir að Jóhann svaraði ekki hringdi samstarfsmaðurinn í lögreglu sem braut sér leið inn í íbúð hans í Berlín. Lögregla kom að honum látnum.

Þetta kemur fram í Hollywood Reporter en Jóhann lést í síðustu viku í íbúð sinni í Berlín. Í frétt Hollywood Reporter er haft eftir talsmanni lögreglunnar í Berlín að engin merki sé um að eitthvað saknæmt hafi leitt til dauða Jóhanns. Lögreglan rannsaki ekki andlátið utan þess að eiturefnarannsókn hafi verið framkvæmd. Niðurstöðu úr henni sé að vænta í næstu viku.

Jóhann, sem skapað hafði sér nafn sem eitt virtasta kvikmyndatónskáld síðari tíma, var minnst hlýlega um allan heim eftir að fregnir af andláti hans bárust út. Jóhann var í tvígang tilnefndur til Óskarsverðlauna auk þess sem að hann hlaut Golden Globe verðlaunin fyrir tónlistina í kvikmyndinni The Theory of Everything.

„Við höfum misst frábært tónskáld og mikinn listamann,“ er haft eftir Iain Canning sem starfaði með Jóhanni ásamt Hildi Guðnadóttur að tónlistinni í hinni væntanlegu kvikmynd Mary Magdalene, eitt af síðustu verkunum sem Jóhann kláraði.

Í frétt Hollywood Reporter segir einnig að Jóhann hafi nýlega skrifað undir samning við Disney um að skrifa tónlistina fyrir væntanlega mynd sem byggð er á sögunum um Bangsímon. Segir Tim Husom, umboðsmaður Jóhanns, að Jóhann hafi þegar verið byrjaður að vinna að tónlistinni og að starfið hafi gengið mjög vel.

„Hann lifði fyrir tónlistina, hún var honum allt. Á meðan ég sit hér með tárin í augunum get ég huggað mig við það að hann snerti svo marga með tónlist sinni. Það skipti hann miklu máli,“ er haft efir Hildi í umfjöllun Hollywood Reporter sem lesa má hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×