Fótbolti

Snýtti sér í 5.000 rúblu seðil

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Manayev snýtir sér í seðilinn.
Manayev snýtir sér í seðilinn.
„Ég hefði getað gefið fátækum þessa peninga en ég ætla ekki að gera það því ég er með nefrennsli,“ skrifaði rússneski fótboltamaðurinn Stanislav Manayev sem er búinn að gera allt vitlaust í heimalandinu.

Hann birti myndband af sér þar sem hann er að snýta sér í 5.000 rúblu seðil, tæpar 10 þúsund krónur, og lét orðin af ofan flakka með myndbandinu.

Hinn 19 ára gamli Manayev lét svo seðilinn falla á gólfið. Liðsfélögum hans hjá FC Tolso til mikillar skemmtunar. Eins og við mátti búast hafa fjölmargir gagnrýnt leikmanninn og þar á meðal íþróttamálaráðherra Rússlands.

Manayev eyddi myndbandinu á endanum en það var of seint. Það er til alls staðar og má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×