Fótbolti

Rússlandsfarar þurfa að skoða vegabréfið sitt núna!

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þeir sem ætla til Rússlands þurfa að huga að ýmsu.
Þeir sem ætla til Rússlands þurfa að huga að ýmsu. vísir/anton, myndvinnsla/hjalti
Utanríkisráðuneytið blés til fundar í höfuðstöðvum KSÍ í dag til þess að koma mikilvægum upplýsingum á framfæri til þeirra sem ætla sér á HM í Rússlandi næsta sumar. Þar var helst talað um tvo hluti. Hið svokallaða Fan Id og svo vegabréf Íslendinga.

Þeir sem fá miða á HM verða að sækja um Fan Id. Sá passi er nefnilega vegabréfsáritun til Rússlands og gildir frá 5. júní til 25. júlí. Þeir sem koma á öðrum tímum til Rússlands þurfa að sækja um vegabréfsáritun hjá rússneska sendiráðinu á Íslandi.

Miði á leiki og Fan Id fara alltaf saman. Ef annað hvort vantar þá kemst viðkomandi ekki á völlinn. Það er því vissara að vera með Fan Id alltaf utan um hálsinn. Fan Id veitir einnig frían aðgang að almenningssamgöngum á leikdegi.

Áður en sótt er um Fan Id verða Rússlandsfarar að athuga vegabréf sín vel og vandlega. Ef vegabréfið er rifið eða plast farið að losna innan í því þá er það ógilt. Skoðaðu því vegabréfið þitt vel áður en þú sækir um Fan Id.

Einnig þarf að passa að vegabréfið gildi að lágmarki í sex mánuði eftir HM eða út janúar árið 2019. Ekki er hægt að breyta vegabréfsnúmeri á Fan Id eftir að sótt er um. Vegabréfsmál verða því að vera á kristaltæru áður en Rússlandsfarar sækja um hið margumtalaða Fan Id.

Utanríkisráðuneytið greindi einnig frá því að við komuna til Rússlands þurfa allir gestir að undirrita útprentun í tvíriti hjá landamæraeftirlitinu. Gesturinn fær annað eintakið og þarf að skila því er hann fer heim. Það blað má því alls ekki glatast.

Svo má ekki gleyma því að Rússland er ekki hluti af evrópska heilbrigðistryggingakerfinu. Það er því afar mikilvægt að ganga úr skugga um að sjúkra- og ferðatryggingar séu í lagi fyrir ferðalag til Rússlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×