Enski boltinn

Rooney kominn með fótboltalið

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson og Wayne Rooney.
Gylfi Þór Sigurðsson og Wayne Rooney. Vísir/Getty
Það er ekki bara David Beckham sem á orðið fótboltalið, nú hefur Wayne Rooney bæst í þann hóp. Rooney og kona hans Coleen eignuðust sitt fjórða barn í gær.

Fyrir átti parið drengina Kai, Klay og Kit og nú er sá fjórði kominn í heiminn og fékk hann nafnið Cass Mac Rooney.

Wayne tilkynnti komu sonarins á Twitter þar sem hann sagðist loksins vera kominn með lið í svokallaða 5-a-side keppni.

Meðgangan var ekki auðveld fyrir Coleen, en hún þurfti að eiga við skandalinn í kringum handtöku Rooney og umtalað framhjáhald hans á meðan á henni stóð. Þau hjónin eru hins vegar búin að skilja það eftir í fortíðinni og bjóða nýjasta soninn velkominn í heiminn.



 


Tengdar fréttir

Rooney hefur samfélagsþjónustuna

Wayne Rooney, hefur hafið samfélagsþjónustu sína en það náðust myndir af kauða í dag í samfélagsþjónustu gallanum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×