Fótbolti

Rúnar og félagar elta toppliðin

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rúnar Alex og félagar geta fagnað í kvöld.
Rúnar Alex og félagar geta fagnað í kvöld. vísir/getty
Rúnar Alex Rúnarsson og félagar hans í Nordsjælland halda áfram að elta toppliðin í dönsku úrvalsdeildinni eins og skugginn. Þeir unnu 2-1 sigur á OB í kvöld.

Rúnar Alex stóð vaktina, sem fyrr, í marki Nordsjælland, en Nordsjælland var tveimur mörkum yfir í hálfleik með mörkum frá Mathias Jensen og Mikkel Rygaard.

Rasmus Festersen minnkaði muninn á 59. mínútu, en nær komust gestirnir frá Óðinsvé ekki og Nordsjælland landaði afar mikilvægum sigri.

Nordsjælland er í þriðja sætinu með 42 stig, fjórum stigum á eftir Bröndby og fimm stigum á eftir Midtjylland. OB er í fimmta sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×