Enski boltinn

Mahrez á Vardy og Leicester áfram

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leicester er komið áfram þökk sé þessum manni.
Leicester er komið áfram þökk sé þessum manni. vísir/getty
Leicester er komið í átta liða úrslit enska bikarsins eftir 1-0 sigur á B-deildarliði Sheffield United á heimavelli í kvöld.

Staðan var markalaus í hálfleik og allt þangað til á 66. mínútu þegar Jamie Vardy skoraði eftir sendingu frá Riyad Mahrez. Uppskrift sem hefur skilað fullt af mörkum.

Þetta varð eina mark leiksins og Leicester er því komið í átta liða úrslitin, en Sheffield situr eftir með sárt ennið.

Restin af sextán liða úrslitunum verða spilaðir um helgina, en Chelsea skaust einnig í átta liða úrslitin með stórsigri á Hull í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×