Erlent

Fjórföld dauðarefsing fyrir að nauðga og myrða sex ára stúlku

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Lík Zainab Ansari fannst á ruslahaug í borginni Kasur þann 9. janúar síðastliðinn.
Lík Zainab Ansari fannst á ruslahaug í borginni Kasur þann 9. janúar síðastliðinn. Vísir/AFP
Dómstóll í Pakistan hefur dæmt Imran Ali, 24 ára gamlan mann, til fjórfaldrar dauðarefsingar fyrir að nauðga og myrða sex ára gamla stúlku í síðasta mánuði. Þetta kemur fram á vef BBC.

Lík Zainab Ansari fannst á ruslahaug í borginni Kasur þann 9. janúar síðastliðinn.

Morðið á Ansari vakti mikla hneykslan í Pakistan og brutust út mótmæli á götum úti þar sem tveir mótmælanda létu lífið. Mótmælin voru vegna meintrar vanhæfni lögreglunnar við rannsókn málsins.

Lögreglan hefur tengt Imran Ali við árásir og morð á fleiri stúlkum á svæðinu.

Tugir báru vitni gegn Ali á meðan réttarhöldin stóðu yfir honum, en verjandi hans dró sig frá málinu eftir að Ali játaði verknaðinn.

Ali var dæmdur til dauðarefsingar fyrir mannrán, nauðgun, morð, hryðjuverk og sódómsku. Þá var honum gert að borga 3,2 milljónir rúpía, eða sem nemur 2,9 milljónum íslenskra króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×