Fótbolti

Rúnar Már lék allan leikinn í fræknum sigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Rúnar Már Sigurjónsson
Rúnar Már Sigurjónsson vísir/getty
Rúnar Már Sigurjónsson og félagar í St.Gallen gerðu sér lítið fyrir og skelltu Basel á útivelli þegar liðin mættust í svissnesku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Rúnar Már lék allan leikinn á miðju St.Gallen og stýrði miðjuspilinu. Leikurinn var markalaus í fyrri hálfleik en tvö mörk frá Cedric Itten í síðari hálfleik tryggðu gestunum 0-2 sigur.

St.Gallen er í fimmta sæti deildarinnar með 30 stig, ellefu stigum minna en Basel sem er í 2.sæti deildarinnar en Young Boys trónir á toppnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×