Sport

Tékk­nesk snjó­bretta­stjarna skrifar ó­trú­lega sögu á Vetrar­ólympíu­leikunum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ester Ledecká sátt með gullið.
Ester Ledecká sátt með gullið. vísir/getty
Hin tékkneska Ester Ledecká hefur skráð sig á spjöld sögunnar á Vetrarólympíuleikunum sem fram fara í PyeongChang þessa dagana.

Þessi 22 ára snjóbrettastjarna kom, sá og sigraði í risasvigi í gær þar sem hún var í 0,01 sekúndu á undan Önnu Veith í mark en sú síðarnefnda varð Ólympíumeistari í Sochi 2014. Sigur Ledecká er af mörgum spekingum talið eitt óvæntasta afrek í sögu Vetrarólympíuleikanna.

Saga Ledecká er ótrúleg enda er hún þekktari fyrir afrek sín sem snjóbrettakona og hafði risasvig á skíðum sem aukagrein. Hún er fyrsti íþróttamaðurinn sem keppir bæði á skíðum og snjóbretti á Ólympíuleikum en hún hefur verið ein fremsta snjóbrettakona heims undanfarin ár og er til að mynda tvöfaldur heimsmeistari í snjóbrettasvigi.

Ledecká var númer 26 til að skíða niður og er óhætt að segja að flestir hafi verið byrjaðir að óska Veith til hamingju með önnur gullverðlaunin í röð. Raunar var NBC sjónvarpsstöðin búin að greina frá því að Veith hefði sigrað og þurfti svo að biðjast afsökunar á því þegar Ledecká þaut í mark.

Það sem gerir sögu Ledecká enn goðsagnakenndari er sú staðreynd að hún mætti ekki til PyeongChang með skíði meðferðis og fékk því lánuð skíði frá bandarísku skíðastjörnunni Mikaelu Shiffrin. Þá er hún fyrsti Tékkinn til að komast á pall í alpagreinum á Ólympíuleikum.

Keppinautar Ledecká trúðu vart sínum eigin augum þegar þau sáu tímann hennar og ein þeirra var Lindsey Vonn, goðsögn í þessum bransa en hún var sjálf að keppa; náði sér ekki á strik og hafnaði í sjöunda sæti.

,,Þetta er klárlega ótrúlegt. Ég vildi óska þess að ég byggi yfir sömu gæðum og hún að geta bara stokkið á milli greina og unnið. Ég er því miður bara góð á skíðum en samt vinnur hún mig í því,” sagði Vonn svekkt.

Eins og áður kemur fram á Ledecká eftir að keppa í sinni aðalgrein.

,,Ég hlakka til þess að komast á snjóbrettið og nú þarf ég að koma mér í snjóbrettagírinn aftur. Það væri frábært að vinna þá keppni líka og ég mun gera mitt besta til að ná því,” segir þessi nýjasta stórstjarna í skíðaheiminum.

Að neðan má sjá hápunkta úr risasviginu í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×