Innlent

Skafrenningur og éljagangur á Hellisheiði og Sandskeiði

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Það er hálka víða á landinu í dag.
Það er hálka víða á landinu í dag.
Hálkublettir eru á Höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesbraut en á Suðurlandi er hálka eða snjóþekja á vegum. Skafrenningur og éljagangur er á Hellisheiði og Sandskeiði. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

Þar segir jafnframt að á Vesturlandi og Vestfjörðum sé hálka eða hálkublettir.

Það er víða orðið greiðfært á Norðurlandi vestra en hálka er á Þverárfjalli og á nokkrum á útvegum. Hálkublettir eru á Vatnsskarði og á Siglufjarðarvegi.

Hálka eða hálkublettir eru víða á Norðausturlandi en greiðfært er í Eyjafirði.

Á Austurlandi er hálka eða snjóþekja á vegum og hálka með suðausturströndinni.

Ófært er nyrst á Hvítársíðuvegi við brúna yfir Norðlingafljót þar flæðir vatn yfir veg.

Þingskálavegur er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Þá vara Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×