Fótbolti

Horsens í fjórða sætið eftir sigur

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kjartan Henry fagnar marki fyrir Horsens.
Kjartan Henry fagnar marki fyrir Horsens. vísir/getty
Kjartan Henry Finnbogason spilaði allan leikinn fyrir AC Horsens sem vann 2-0 sigur á FC Helsingör á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í dag.

Kjartan fékk að líta gula spjaldið strax á fimmtu mínútu, en staðan var markalaus allt þangað til á 54. mínútu þegar Oliver Drost kom Horsens yfir.

Peter Nymann tvöfalaði svo forystuna fyrir Horsens sjö mínútum fyrir leikslok eftir undirbúning frá varamanninum Halli Hanssyni. Lokatölur 2-0.

Kjartan spilaði allan leikinn eins og fyrr segir, en hann hefur verið að gera mjög góða hluti á tímabilinu fyrir Horsens sem eru í fjórða sæti deildarinnar með 30 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×