Fótbolti

Sara Björk og stöllur hennar styrktu stöðu sína á toppnum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sara í leik með Wolfsburg.
Sara í leik með Wolfsburg. vísir/getty
Sara Björk Gunnarsdóttir var á sínum stað í byrjunarliði Wolfsburg þegar liðið heimsótti Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Það var hin danska, Pernille Harder, sem gerði eina mark leiksins eftir fimmtán mínútna leik. Hoffenheim, sem er um miðja deild, reyndi hvað þær gátu að jafna en allt kom fyrir ekki.

Wolfsburg trónir á toppi deildarinnar og hefur þriggja stiga forystu á Bayern Munchen sem er í öðru sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×