Körfubolti

Stjarna LeBron James skein skærast í stjörnuleiknum | Myndbönd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
LeBron með verðlaun sín fyrir að vera valinn besti leikmaður stjörnuleiksins.
LeBron með verðlaun sín fyrir að vera valinn besti leikmaður stjörnuleiksins. vísir/afp
Lið LeBron James vann þriggja stiga sigur, 148-145, í stjörnuleik NBA-deildarinnar í nótt og James var valinn besti leikmaður leiksins í þriðja sinn á ferlinum.

James skoraði 29 stig, tók 10 fráköst og gaf 8 stoðsendingar í sigri síns liðs gegn liði Steph Curry. Alls skoruðu níu leikmenn í liði LeBron yfir 10 stig í leiknum.

Curry átti ekki sama stjörnuleikinn og LeBron því hann skoraði aðeins 11 stig og hitti aðeins úr fjórum af fjórtán skotum sínum í leiknum.

Leikurinn hefur þótt vera aðeins of leiðinlegur síðustu ár þar sem leikmenn spila nánast enga vörn en það var aðeins tekið meira á því núna en síðustu ár.

Hér að neðan má sjá fullt af myndböndum af tilþrifum leiksins.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×