Golf

Bubba bestur á opna Genesis-mótinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bubba með bikarinn fallega eftir mótið.
Bubba með bikarinn fallega eftir mótið. vísir/getty
Tvöfaldi Masters-sigurvegarinn Bubba Watson hrósaði sigri á Genesis Open golfmótinu sem lauk í gærkvöldi. Watson var tveim höggum á undan næstu mönnum.

Watson spilaði lokadaginn á 69 höggum eða tveim höggum undir pari. Kevin Na og Tony Finau sóttu að honum en urðu að sætta sig við annað og þriðja sætið að lokum.

Hinn 39 ára gamli Watson var með fimm fugla og þrjá skolla á lokahringnum. Hann gerði meira en nóg til þess að klára þetta skemmtilega mót.

Rory McIlroy hafnaði 20. sæti mótsins ásamt fleirum og besti kylfingur heims, Dustin Johnson, var í 16. sæti ásamt fleirum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×