Glamour

Vinsælasta yfirhöfn vorsins?

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Breska tískuhúsið Burberry hefur löngum verið þekkt fyrir rykfrakkana sínu frægu sem fyrir löngu eru orðin klassík í tískuheiminum og mörg önnur merki gert sínar útgáfur af rykfrakkanum góða. 

Núna er ný útgáfa á góðri leið með að vera vinsælasta yfirhöfnin um þessar mundir ef marka má þessar helstu götutískustjörnur. Bæði Bella Hadid og hin dansk/íslenska Þóra Valdimars sáust í vikunni í rauðköflóttri lakkkápu frá Burberry. Áberandi yfirhöfn en skemmtileg. 

Kápan fæst meðal annars á Net-a-Porter þar sem hún getur orðið þín fyrir litlar 230 þúsund íslenskar krónur. En á móti kemur að hún hentar vel allan ársins hring, verandi vatnsheld. Hvernig líst ykkur á?






×