Glamour

Eltar af ljósmyndurum í nýjustu herferð Balenciaga

Ritstjórn skrifar
Glamour/Skjáskot, Balenciaga
Nú þegar fer að vora fara allar vor- og sumarherferðirnar að detta inn, sem við fylgjumst vel með. Nýjasta auglýsingaherferð Balenciaga sýnir fyrirsætur sem eru að forða sér frá ljósmyndurum, með stæðilega lífverði sér við hlið. Þessi herferð kom út á sama tíma og herferð Yeezy, sem hefur að geyma svipaða hugmynd.

Herferðin er mjög skemmtileg, og fötin og fylgihlutirnir fá að njóta sín mjög vel. Myndirnar eru teknar í París, og sýnir fyrrisæturnar halda fyrir andlitið eða andlit barna sinna, og eru staðsettar fyrir framan Balenciaga verslanirnar í París. Stílistinn er Lotta Volkova, sem unnið hefur mikið með Demna Gvasalia undanfarin ár. 

Fylgstu með á Instagram-síðu Balenciaga fyrir fleiri myndir, en þær detta inn hvor af annarri næstu daga. 






×