Innlent

Segist ekki hafa notið ritstjórnarlegs sjálfstæðis og fögur fyrirheit á sandi reist

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Helga Arnardóttir, frétta- og dagskrárgerðarmaður, segir áform stjórnenda hafa verið reist á sandi.
Helga Arnardóttir, frétta- og dagskrárgerðarmaður, segir áform stjórnenda hafa verið reist á sandi.
Fjölmiðlakonan Helga Arnardóttir segir að eftir aðeins átján daga í starfi yfirritstjóra Birtíngs hafi verið ljóst að forsendurbrestur væri orðinn varðandi ráðningu hennar. Öll áform og fyrirheit stjórnenda Birtíngs hafi verið á sandi reist. Fram kom á vef Mannlífs í gær að Birtíngur og Helga hafi komist að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að Helga lyki störfum.

Helga sagði upp störfum í Kastljósi í desember og tilkynnt var að hún tæki við sem yfirristjóri Birtíngs. Birtingur gefur út Hús og Hýbíli, Gestgjafann og Vikuna auk Mannlífs sem kom einu sinni út, í samstarfi við Kjarnann, á meðan Helgu naut við hjá útgáfufélaginu.

„Fyrir áramót sagði ég upp föstu starfi mínu hjá Ríkisútvarpinu og var ráðin sem yfirritstjóri Birtings. Uppi voru fögur fyrirheit og stór áform um að ráðast í töluverðar breytingar á Birtingi með tilkomu nýrra eigenda meðal annars í stafrænni uppbyggingu,“ segir Helga á Facebook.

„Þegar til kastanna kom voru öll slík áform á sandi reist. Nokkrum dögum eftir að ég tók til starfa var útlit fyrir að um mjög alvarlegan forsendubrest yrði að ræða á minni ráðningu. Stjórnendur tilkynntu mér þá einhliða ákvörðun þeirra um að verkefnum mínum og hlutverki yrði gjörbreytt og ég mótmælti þeim áformum.“

Helga segir að eftir þann tíma hafi henni orðið ljóst að hún nyti ekki stuðnings stjórnenda Birtíngs í þeim breytingum sem hún hafi verið ráðin til að leiða.

„Þá naut ég ekki heldur þess ritstjórnarlega sjálfstæðis við útgáfu Mannlífs sem ég tel nauðsynlegt grundvallaratriði til að starfa við í frjálsri og óháðri fjölmiðlun.“

Helga var fréttakona á Stöð 2 áður en hún söðlaði um og réð sig til RÚV.

„Ég hef einungis starfað á tveimur fjölmiðlum á mínum 15 ára ferli og átt gott og heilbrigt samstarf við atvinnurekendur mína og samstarfsmenn á þeim tíma. Framkoma vinnuveitenda á þessum skamma tíma hjá Birtingi olli mér miklum vonbrigðum og eftir átján daga í starfi var alveg ljóst að forsendubrestur væri kominn í þetta samstarf og því yrði ekki haldið áfram.“

Fjárfestingarfélagið Dalurinn á útgáfufélagið Birtíng. Eigendur þess félags eru Árni Harðarson, Róbert Wessman, Jóhann G. Jóhannsson og Halldór Kristmannson.



Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×