Fótbolti

Suarez tryggði Barcelona sigur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Suarez skoraði eina mark leiksins
Suarez skoraði eina mark leiksins vísir/getty
Barcelona er með annan fótinn í úrslitum spænsku bikarkeppninnar eftir sigur á Valencia í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitaeinvíginu.

Fyrri hálfleikur var frekar atvikalaus og gengu liðin markalaus til búningsherbergja.

Luis Suarez sá til þess að Barcelona færi með forskot í seinni leikinn með marki á 67. mínútu. Lionel Messi lék á nokkra varnarmenn Valencia inn í teig og vippaði svo boltanum á kollin á Suarez.

Meira var ekki skorað af mörkum í leiknum. Valencia á því enn möguleika í seinni leiknum á heimavelli sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×