Glamour

Ómáluð á forsíðu ítalska Vogue

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Fyrirsætan Gisele Bündchen er nýjasta forsíðufyrirsæta ítalska Vogue í febrúarheftinu sem kemur út þann 6 febrúar næstkomandi.

Fyrirsætan deildi sjálf myndunum á Instagram í gær en forsíðuþátturinn og viðtalið ber yfirskriftina Sunnudagur með Gisele - en myndirnar eru teknar á hennar eigin heimili og segist fyrirsætan hvorki hafa fengið hárgreiðslu né förðun fyrir tökuna. Mjög afslöppuð myndtaka sem endurspeglast í gullfallegum myndum af brasilísku fegurðardísinni. 

Það er óvanalegt að Gisele opni dyrnar á sitt eigið heimili en hún er gift bandaríska NFL leikmanninum Tom Brady, sem er einmitt að keppa um sinn sjötta Super Bowl titil á sunnudaginn með liði sínu New England Patriots. Hann og börnin þeirra tvö koma einmitt líka fyrir í myndaþættinum fyrir Vogue en það var ljósmyndarinn Jamie Hawkesworth sem tók myndirnar. 

Þetta er í fyrsta sinn sem ítalska Vogue birtir myndir af fyrirsætu á forsíðunni með engri stíliseringu, förðun eða hári og þetta er líka í fyrsta sinn sem Gisele hleypir fjölmiðli inn á eigið heimili. 






×