Lífið

Spjallað við Siggu Kling á Facebook Live - Febrúar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hægt að spyrja Sigríði um allt milli himins og jarðar.
Hægt að spyrja Sigríði um allt milli himins og jarðar.
Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spárnar fyrir febrúar birtust í Fréttablaðinu og á Vísi í morgun.

Sigga leggur áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýta sér orkuna, klappa sér á bakið og elska lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins.

Vísir fór af stað með skemmtilega nýjung fyrir nokkrum mánuðum en þá var hægt að spjalla við Siggu Kling í beinni útsendingu á Facebook-síðu Vísis. Þetta verður að sjálfsögðu á dagskrá á ný í dag og býðst lesendum að bera fram spurningar um allt milli himins og jarðar. 

Útsendingin hefst klukkan 14:00.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×