Lífið

Innmúraðir vinningshafar í áskriftaleik Moggans

Jakob Bjarnar skrifar
Áskriftaleikur Morgunblaðsins hefur vakið mikla athygli.
Áskriftaleikur Morgunblaðsins hefur vakið mikla athygli. Vísir/Stefán

Óvenju hátt hlutfall þjóðþekktra einstaklinga er meðal vinningshafa í áskriftaleik Morgunblaðsins en það er sjálfur ritstjórinn, Haraldur Johannessen, sem sér alla jafna um að draga vinningshafana úr pottinum.

Haraldur Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins.Vísir/Hanna

Virðulegir vinningshafar

Haraldur hefur einstakt lag á því að draga út þekka einstaklinga úr hrúgunni, reyndar með rafrænum hætti, sem eiga það svo jafnframt sammerkt að vera sérlegir velunnarar blaðsins og innmúraðir og innvígðir Sjálfstæðismenn.

Er af þessum sökum sérlega skemmtilegt að fylgast með drættinum hverju sinni. Hvaða þjóðþekkti einstaklingur kemur upp úr hattinum?

Nú liggur til dæmis fyrir, eftir nýlegan útdrátt, að Brynjar Níelsson alþingismaður er á leið til Barcelona ásamt konu sinni Arnfríði Einarsdóttur landsréttardómara, sem var meðal hinna heppnu sem dregnir voru út á nýju ári. 

Stígur Helgason og félagar hans á Twitter fylgjast spennt með áskriftaleik Moggans.

Arnfríður er ekki eini dómarinn sem hefur hreppt vænan vinning í áskriftarleiknum. Í febrúar í fyrra vann Þorgeir Ingi Njálsson, þá dómstjóri Héraðsdóms Reykjaness nú í Landsrétti, tíu milljón króna Lexus-glæsibifreið í þessu sama happadrætti. Dómarar landsins ættu samkvæmt þessu að hugsa fallega til Morgunblaðsins.

Fylgjast spennt með á Twitter

Fyrir ekki svo löngu vann svo Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ferð til Cleveland. Og, fleiri nöfn má nefna.

Fréttamaður Ríkisútvarpisins, Stígur Helgason, er áhugasamur um þennan áskriftaleik og fylgist grannt með gangi mála. Hann upplýsti nýverið á Twittersíðu sinni að: „Áður höfðu Lækna-Tómas og sýslumaðurinn á NV-landi unnið ferð til San Fran“.

Stígur Helgason, fréttamaður á RÚV.

María Lilja Þrastardóttir, fjölmiðlamaður með meiru, segir við þetta tækifæri, á Twittersíðu Stígs að þessir leikur hafi alltaf verið í uppáhaldi hjá sér. Og rifjar upp þegar Marta María Jónasdóttir, sem stýrir Smartlandi á mbl.is, var með happadrætti á sínum snærum:

„Þessi leikur er alltaf í uppáhaldi hjá mér. Marta verðlaunar góða vinkonu sína með mjög specific gólfdúk en vinkonan var “óvænt” dregin úr potti og einmitt að gera upp heimilið. THE ODDS!“ segir María Lilja og linkar við þá tilteknu frétt.

Á næstu vik­um eiga áskrif­end­ur Morg­un­blaðsins mögu­leika á að hreppa borgarferðir og verður spennandi að sjá hverjir fara til Tel Aviv, Detroit, Cinc­innati, St. Lou­is, Dublin og Dallas á vegum blaðsins.

Uppfært 12:38

Í eldri útgáfu fréttarinnar segir að Njáll Trausti Friðbertsson sé fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Njáll Trausti er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og eru lesendur sem og Njáll Trausti beðnir velvirðingar á mistökunum. Þetta hefur verið lagfært í texta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×