Viðskipti innlent

Hækka verð fyrir bílastæði við Keflavíkurflugvöll sé borgað við hlið

Atli Ísleifsson skrifar
Dagurinn fer úr 1.250 krónum í 1.750 krónur á dag ef borgað er við hlið.
Dagurinn fer úr 1.250 krónum í 1.750 krónur á dag ef borgað er við hlið. Vísir/Pjetur
Isavia mun um næstu mánaðarmót taka upp nýja gjaldskrá við bílastæðahlið við Keflavíkurflugvöll og mun verð fara úr 1.250 krónum í 1.750 krónur á dag ef borgað er við hliðið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia. Nýtt bókunarkerfi hefur verið tekið upp á vef flugvallarins  þar sem farþegar munu geta bókað bílastæði á flugvellinum fram í tímann á betra verði en þeir sem borga við hlið. Með bókunarkerfinu sé ætlunin að minnka líkurnar á því að stæðin fyllist á álagstímum á flugvellinum.

„Lægsta verð sem er í boði núna ef bókað er á vefnum er hins vegar 940 kr. á dag, en verðið fer eftir eftirspurn á hverjum tíma. Þannig mun stór hluti farþega sem bóka bílastæði fá betra meðalverð á dag en áður hefur boðist auk þess sem farþegar geta gengið að bílastæðinu vísu,“ segir í tilkynningunni.

Góð reynsla erlendis

Haft er eftir Hlyni Sigurðssyni, framkvæmdastjóra viðskiptasviðs Keflavíkurflugvallar, að kerfið sé þekkt á flugvöllum víða um heiminn og hafi verið í þróun og innleiðingu hjá Isavia í meira en ár. Hafi slík kerfi reynst afar vel á erlendum flugvöllum og þá sérstaklega þegar kemur að aðgangsstýringu á bílastæðin.

„Þessi nýja leið mun vonandi verða til þess að Íslendingar nýti sér hana, bæði til að spara og sýna fyrirhyggju þegar kemur að ferðalaginu. Verðið sem viðkomandi fær fer þá eftir framboði og eftirspurn, það er hversu margir hafa bókað á undan á sama tíma. Því gefur augaleið að til að fá bílastæðið á sem bestu kjörum á álagstímum eins og um páska, í sumar og um jól er best að bóka með góðum fyrirvara,“ er haft eftir Hlyni.

2.400 stæði

Í farþegaspá Isavia fyrir Keflavíkurflugvöll, sem kynnt var í nóvember síðastliðnum, er spáð töluverðri fjölgun íslenskra farþega sem ferðast um flugvöllinn. Á miklum álagstímum hefur það atvikast að bílastæðin við flugvöllinn hafa fyllst, en í dag eru langtímastæði 2.400 talsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×