Viðskipti innlent

Kalla inn hummus frá Í einum grænum

Atli Ísleifsson skrifar
Málmþráður fannst í einni dós.
Málmþráður fannst í einni dós. Reykjavíkurborg
Heilbrigðisyfirlit Reykjavíkur hefur kallað inn hummus frá Í einum grænum þar sem varan gæti innihaldið aðskotahlut, eða málmþráð.

Í frétt á vef Reykjavíkurborgar segir að Í einum grænum ehf.hafi, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, ákveðið í varúðarsjónarmiði og með tilliti til neytendaverndar að innkalla Hummus í dósum. Ástæðan sé að aðskotahlutur, það er málmþráður hafi fundist í einni dós.

„Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vöruheiti:  Hummus

Vörunúmer:  6700 / 6710

Strikanúmer: 5690821067006  / 5690821067105

Nettómagn: 250 g

Best fyrir: 04.03.2018

Framleiðandi: Í einum grænum ehf.

Dreifing: Verslanir um land allt

Þeir einstaklingar sem hafa keypt Hummus með framangreindum merkingum, geta skilað þeim til höfuðstöðva fyrirtækisins að Brúarvogi 2, 104 Reykjavík eða í næstu verslun og fengið nýja vöru í staðinn. Allar nánari upplýsingar fást hjá Í einum grænum alla virka daga frá 9 - 16 í síma 565-3940,“ segir í fréttinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×