Innlent

Dagur og Eyþór tókust á um borgarmálin: „Einhver versta hugmynd sem Vesturbæingar hafa væntanlega heyrt“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tókust á í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tókust á í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Vísir/Samsett mynd
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri gaf lítið fyrir hugmyndir Eyþór Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni, um stórtæka byggingu íbúða í Örfirisey. Dagur sagði það misskilning að meirihlutinn í borginni talaði fyrir þéttingu byggðar í öllum tilvikum.

Þá sagði borgarstjóri að byrjað verði að hanna 3000 íbúðir fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor en Eyþór sagði fólk flýja borgina vegna svikinna kosningaloforða meirihlutans. 

Eitt stykki Garðabær og Álftanes í Örfirisey

Dagur og Eyþór tókust á í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Húsnæðis-, samgöngu- og skólamál voru í öndvegi en báðir gagnrýndu þeir stefnu hins í málaflokkunum harðlega.



Í seinni hluta þáttarins ræddu Dagur og Eyþór sérstaklega hugmyndir þess síðarnefnda um umfangsmikla uppbyggingu í Örfirisey. Dagur sagði þau áform ekki raunhæf.

„Eyþór talar um að þar megi byggja 10-15 þúsund manna hverfi. Bara til þess að setja það í samhengi, hann er semsagt að tala um eitt stykki Garðabæ og Álftanes út í Örfirisey,“ sagði Dagur og benti á að umferð út í byggðina myndi m.a. fara um Hringbraut og Mýrargötu, sem væri ekki vænlegur kostur.

Hugmynd um byggð í Örfirisey hafi auk þess fallið um sjálfa sig vegna þeirrar viðleitni að standa vörð um blómlega uppbyggingu sem er nú að þróast úti á Granda í Vesturbæ Reykjavíkur. Þá sé misskilningur að meirihlutinn vilji þétta byggð út um allt.

„Ef útþenslustefnan hans er ögrun og árás á lífskjör fólksins í Breiðholti, Árbæ og Grafarvogi þá er þetta í raun einhver versta hugmynd sem Vesturbæingar hafa væntanlega heyrt,“ sagði Dagur.

Miðaði við úttektir

Eyþór sagði þá að sér þætti sérstakt að Dagur tali gegn stefnunni sem hann hefur boðað í borgarpólitíkinni undanfarin ár en Dagur hefur, eins og áður sagði, verið ötull talsmaður þéttingar byggðar í Reykjavík.

„Þegar ég tala um að það sé mögulegt að byggja 10-15 þúsund íbúðir þá er það bara miðað við þær úttektir sem hafa verið gerðar,“ sagði Eyþór.

Þá benti hann á að sú ákvörðun um að setja Geirsgötu ekki í stokk gæti leitt til þess að ekki verði hægt að byggja eins mikið í Örfirisey og upphaflegar hugmyndir gerðu ráð fyrir.

3000 íbúðir í hönnun fyrir kosningar

Húsnæðismarkaðurinn var auk þess til umræðu í þættinum en Eyþór sagði ástandið í Reykjavík ekki hafa lagast þrátt fyrir endurtekin loforð meirihlutans um breytingar. Þá sagði hann Reykvíkingar flýja borgina og leita í önnur sveitarfélög, þar sem þjónusta væri betri samkvæmt könnunum.

Dagur sagði borgina aftur á móti vera á fleygiferð og benti á að hún hafi verið hástökkvari í úttekt Economist á borgum. Þá benti Dagur á að siðustu ár hafi verið byggt með félagslegum áherslum, en ekki áherslum á frjálsan markað eins og Sjálfstæðisflokkurinn hafi haft að leiðarljósi, og nú sé áætlað að 3000 íbúðir verði komnar í hönnun fyrir sveitarstjórnarkosningarnar þann 26. maí næstkomandi.

Eyþór gekk þá hart að Degi og spurði hversu margar af íbúðunum í málefnasamningi borgarstjórnar væru fullbyggðar. Dagur kvaðst myndu leggja fram það yfirlit í vor og ítrekaði að í málefnasamningi hefði verið talað um íbúðir sem byrjað væri að hanna en ekki fullbyggðar.

Viðtalið við Dag B. Eggertsson borgarstjóra og Eyþór Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni, má hlusta á í heild í spilurum í fréttinni hér að ofan.


Tengdar fréttir

Slegist um annað og þriðja sæti Samfylkingarinnar í Reykjavík

Lítil endurnýjun er í kortum Samfylkingarinnar í borginni en búast má við harðri baráttu um efstu sæti listans. Fullkomin sátt virðist um leiðtogann Dag B. Eggertsson. Kristín Soffía skorar varaformanninn á hólm um annað sætið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×