Glamour

Kylie Jenner orðin mamma

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Eitt stærsta leyndamál síðustu mánuða í heimi fræga fólksins hefur verið hvort raunveruleikastjarnan Kylie Jenner sé ólétt eða ekki. Nú hefur það loksins verið staðfest og það af henni sjálfri á Instagram.

Jenner opnaði sig loksins á samfélagsmiðlinum þar sem hún sagði frá því að hún eignaðist heilbrigða stúlku þann 1 febrúar síðastliðinn. Hún bað aðdáendur sína afsökunar á því að hafa ekki sagt frá þessu fyrr en að hana langaði að halda óléttunni fyrir sig. Meðal annars til að geta undirbúið sig fyrir þetta stærsta hlutverk í lífinu án alls stress og utanaðkomandi pressu. 

Vel skiljanlegt fyrir þessa 20 ára stúlku sem hefur alist upp í sviðsljósinu og deilt öllu lífi sínu með sjónvarpsáhorfendum og fylgjendum á samfélagsmiðlum. 

Hamingjuóskir hennar, Travis Scott barnsföður hennar og fjölskyldunnar!

Hér fyrir neðan má sjá myndband sem þau gerðu til að deila meðgöngunni og fæðingunni með áhugasömum - ansi krúttlegt. 

A post shared by Kylie (@kyliejenner) on






×