Innlent

Nýtt myndband frá Völvunni: „Mikilvægt að skoða á sér píkuna“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Tónlistarkonan Salka Sól við tökur á myndböndum Völvunnar en hún er einn 50 viðmælenda í verkefninu.
Tónlistarkonan Salka Sól við tökur á myndböndum Völvunnar en hún er einn 50 viðmælenda í verkefninu.
Píkuskoðun er umfjöllunarefni annars myndbands Völvunnar en Völvan er hugarfóstur þeirra Ingu Bjarkar Bjarnadóttur, Ingigerðar Bjarndísar Írisar Ágústsdóttur og Önnu Lottu Michaelsdóttur. Þær vildu búa til vettvang þar sem hægt væri að læra um píkur, miðla fróðleik, spá og spekúlera þar sem þeim þótti þær ekki hafa lært nóg um píkurnar sínar. 

Fyrsta myndband verkefnisins var frumsýnt í mars á síðasta ári. Þá ræddu viðmælendur meðal annars um upplifun sína af eigin píkum, blæðingum, sjálfsfróun, kynlífi og kynfræðslu en eins og áður segir er umræðuefnið í nýja myndbandinu nú píkuskoðun.

 

Í myndbandinu er rætt við Sölku Sól Eyfeld, Guðrúnu Esther Árnadóttur, Maríu Guðmundsdóttur, Ingu Björk Bjarnadóttur, Indíönu Rós Ægisdóttur og Bylgju Babýlons.

Sjö ný myndbönd á næstunni

Að sögn Ingigerðar Bjarndísar var myndbandið frumsýnt í sérstöku frumsýningarpartýi á sunnudag auk sex annarra myndbanda sem verða sett á netið á næstu vikum. Viðmælendur Völvunnar við gerð myndbandanna voru alls um 50 manns af öllum kynjum, með ólíkar kynhneigðir, af ólíkum kynþáttum, fatlað og ófatlað.

Inga Björk Bjarnadóttir, Ingigerður Bjarndís Ágústsdóttir og Anna Lotta Michaelsdóttir.iðunn daníelsdóttir
Aðspurð hvers vegna píkuskoðun sé nú til umfjöllunar segir Ingigerður það mikilvægt að skoða á sér píkuna.

„Þetta er svo stór hluti af svo mörgu. Það er mikilvægt að skoða á sér píkuna upp á kynlíf að gera, blæðingar, ýmsa sjúkdóma og kvilla,“ segir Ingigerður.

Hún segir þetta skemmtilegt umræðuefni og að viðmælendurnir hafi haft margt skemmtilegt að segja um píkuskoðunina eins og sjá má í myndbandinu hér neðst í fréttinni.

Ekki varta heldur inngróið hár

„Ég hélt einu sinni að ég væri með vörtu á píkunni og skoðaði hana mjög ítarlega. Það var ekki varta heldur inngróið hár – winning,“ segir til dæmis uppistandarinn Bylgja Babýlons.

„Ég held að það sé bara brjálæðislega mikilvægt að skoða á sér píkuna því hún breytist, hún hlýtur að breytast. Skoða hana í alls konar ástandi, rakaða eða órakaða eða eitthvað,“ segir tónlistarkonan Salka Sól.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Vilja opna umræðuna um píkuna

Þær Inga Björk Bjarnadóttir og Ingigerður Bjarndís Ágústsdóttir frumsýna á Loft Hostel í kvöld myndband sem þær gera undir merkjum Völvunnar, verkefnis sem byrjaði fyrir um ári síðan en fór almennilega af stað í desember síðastliðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×