Bílar

Gott „sánd“ í Nissan Micra

Finnur Thorlacius skrifar
Í höfuðpúðanum eru Bose hátalarar og hljómburðurinn frábær um allan bílinn.
Í höfuðpúðanum eru Bose hátalarar og hljómburðurinn frábær um allan bílinn.
Hljómburðurinn sem BOSE Personal hljómtækin í Nissan Micra búa yfir þykir svo einstakur að í sameiginlegri lesendakönnun sem þýsku tímaritin Auto Bild og Computer Bild létu gera voru hljómtækin í Micra kosin þau bestu sem boðin eru í þessum stærðarflokki bíla. Í Þýskalandi velja 37% kaupenda Micra BOSE Personal með nýja bílnum.

Þetta eru fyrstu meiriháttar verðlaunin fyrir BOSE í Micra en lesendur tímaritanna veittu því hæstu einkunn fyrir framúrskarandi hljómgæði og tengimöguleika. Kerfið er m.a. búið sex hátölurum, þar af tveimur Ultra-Nearfield™ hátölurum í höfuðpúða ökumanns. Það er einnig tengt afþreyingarkerfinu Nissan Connect sem hægt er að samþætta snjallsímum.

Helen Perry, framkvæmdastjóri smábílaframleiðslu Nissan í Evrópu, segir að í fáum löndum eigi sér stað jafn gróskumikið frumkvöðlastarf í bílaiðnaði og í Þýskalandi þar sem atvinnugreinin sé auk þess einna þróuðust í heiminum. Hún segir að því séu þessi verðlaun sem Nissan hljóti fyrir BOSE í Micra einstaklega mikils virði og mikilvæg viðurkenning fyrir þá miklu vinnu sem hönnuðir BOSE og Nissan lögðu í þróun hljómflutningskerfisins fyrir nýjan Micra.

BOSE Personal sem hannað var sérstaklega fyrir innréttingu Nissan Micra markar á vissan hátt nýjan staðal sem leiðandi kerfi í þessum bílaflokki. Styrkur, breitt tíðnisvið og staðsetning hátalaranna í innréttingunni gera það að verkum að hljómurinn drefist jafn um farþegarýmið og hefur kerfið enga þörf fyrir sérstakan bassahátalara. Hjá BL er BOSE Personal staðalbúnaður í Nissan Micra Tekna en auk þess er hægt að panta kerfið sérstaklega með Nissan Qashqai og X-Trail.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×