Viðskipti innlent

Gísli Heimisson til Kortaþjónustunnar

Hörður Ægisson skrifar
Gísli Heimisson var áður framkvæmdastjóri MainManager.
Gísli Heimisson var áður framkvæmdastjóri MainManager.
Gísli Heimisson hefur verið ráðinn forstöðumaður hugbúnaðarsviðs Kortaþjónustunnar, samkvæmt upplýsingum Markaðarins, en hann hafði verið framkvæmdastjóri MainManager frá júní 2017.

Tekur Gísli við starfinu af Gunnari M. Gunnarssyni, sem jafnframt var áður annar af hluthöfum Kortaþjónustunnar ásamt Jóhannesi Inga Kolbeinssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækisins, en hann hætti í byrjun ársins og við starfi hans tók Björgvin Skúli Sigurðsson. Gísli, sem er verkfræðingur að mennt, var meðal annars framkvæmdastjóri banka- og rekstrarsviðs MP banka fram til ársins 2015 og þá var hann framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Glitnis banka.

Kortaþjónustan rambaði á barmi gjaldþrots eftir greiðslustöðvun flugfélagsins Monarch í október. Í kjölfarið var gengið frá sölu á fyrirtækinu til hóps fjárfesta, sem var leiddur af Kviku, á eina krónu sem lagði Kortaþjónustunni einnig til nærri 1.500 milljónir í nýtt hlutafé.

Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál. 







Fleiri fréttir

Sjá meira


×