Handbolti

Aron missir af stórleiknum gegn Vardar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aron í leik með Barcelona.
Aron í leik með Barcelona. fc barcelona
Aron Pálmarsson meiddist í öðrum leik Barcelona eftir EM og mun missa af næstu leikjum liðsins.

Aron fór meiddur af velli snemma í fyrri hálfleik í leiknum gegn Bada Osca og snéri ekki aftur. Það er nú orðið ljóst að hann verður frá í þrjár vikur.

Barcelona verður því án Arons í næstu leikjum en liðið mun helsta sakna hans á laugardag er Barcelona spilar við Evrópumeistara Vardar í Meistaradeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×