Viðskipti innlent

Bankarnir taldir standa styrkum fótum

Kjartan Kjartansson skrifar
Tekið hefur verið á áhættuþáttum sem gerðu bankakerfið fallvalt fyrir hrunið 2008.
Tekið hefur verið á áhættuþáttum sem gerðu bankakerfið fallvalt fyrir hrunið 2008. Vísir
Tekið hefur verið á helstu áhættum sem gerðu bankakerfið fallvalt í aðdraganda fjármálakreppunnar árið 2008 og standa bankarnir nú styrkum fótum. Þetta er niðurstaða skýrslu nefndar um skipulag bankastarfsemi á Íslandi sem hefur verið skilað til fjármála- og efnahagsráðherra.

Mat nefndarinnar er að ekkert bendi til þess að sterk staða bankanna breytist á næstu misserum. Starfsumgjörð fjármálamarkaðar hafi verið gjörbylt frá fjármálakreppunni 2008. Breytingar í regluverki og eftirliti hafi tekið á helstu áhættum sem ollu óstöðugleika bankakerfisins fyrir hana, að því er segir í tilkynningu á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Í ljósi sögunnar telur nefndin samt skynsamlegt að dregin verði varnarlína um hvað fjárfestingarbankastarfsemi á grunni beinnar og óbeinnar stöðutöku geti vaxið mikið hjá stærstu bönkunum, þeim sem teljast kerfislega mikilvægir hér á landi.

Skipti starfseminni upp eða dragi úr henni

Nefndin leggur til gripið verði til aðgerða ef hlutfall beinnar eða óbeinnar stöðutöku nái 10-15% af eiginfjárgrunni í framtíðinni hjá einhverjum bankanna.

Viðkomandi banki hafi þá tvo valkosti, að draga úr þessari starfsemi sinni eða stofna um hana sérstakt félag, sem þó má vera innan sömu samstæðu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þannig verði leitast við að tryggja að þótt banki velji að halda áfram að auka slíka starfsemi verði kerfislega mikilvæg starfsemi bankans varin gegn aukinni áhættu.

Til vara leggur nefndin til að löggjafinn veiti Fjármálaeftirlitinu skýra heimild og skyldu til að grípa til aðgerða telji eftirlitið að fjárfestingarbankastarfsemi tiltekins banka sé orðin það viðamikil að hún skapi áhættu fyrir viðskiptabankann. Þá kallar nefndin eftir því að eftirlitsaðilar skilgreini þá kjarnastarfsemi bankanna sem ávallt verður að vera til staðar til að þjóna almenningi og fyrirtækjum landsins.

Fjármála- og efnahagsráðherra skipaði nefndina í júlí. Henni var falið að taka afstöðu til þess hvort að ástæða sé til að gera breytingar á núverandi skipan mála og  eftir atvikum leggja fram tillögur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×