Sport

Varamaður Tom Brady orðinn launahæstur í NFL eftir að byrja aðeins sjö leiki

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jimmy Garoppolo á nú fyrir salti í grautinn.
Jimmy Garoppolo á nú fyrir salti í grautinn. getty
Leikstjórnandinn Jimmy Garoppolo varð í gærkvöldi launahæsti leikmaður sögunnar í NFL-deildinni í amerískum fótbolta þegar að hann skrifaði undir fimm ára langan samning við San Francisco 49ers.

Garoppolo fær litlar 137,5 milljónir dollara í laun yfir þennan tíma eða 27,5 milljónir á ári. Litlu munar á honum og Matthew Stafford, leikstjórnanda Detroit Lions, sem er næstlaunahæstur með 27 milljónir dollara á ári.

Það sem er áhugaverðast við þetta allt saman er að Garoppolo, eða Jimmy G eins og hann er kallaður, hefur aðeins byrjað sjö leiki í NFL-deildinni. Allir hinir 100 milljóna dollara mennirnir í deildinni hafa sannað gildi sitt á nokkrum árum og/eða hreinlega unnið Super Bowl.

Garoppolo var fenginn til New England Patriots í annarri umferð nýliðavalsins árið 2014 og fannst sérfræðingum strax athyglivert að liðið væri að taka leikstjórnanda svona snemma í valinu þegar það er með Tom Brady. Var talið nánast öruggt að  Bill Belichick, þjálfari Patriots, vissi eitthvað sem aðrir vissu ekki og þarna væri arftaki Tom Brady á ferðinni.

vísir/getty
Garoppolo sat á bekknum hjá Patriots, rólegur, í þrjú ár, en spilaði tvo leiki í byrjun tímabilsins 2016 þegar að Tom Brady var í banni. Hann vann báða leikina og spilaði mjög vel. Sannfærðust menn enn frekar um að þarna væri á ferð maðurinn sem myndi taka við af Brady.

Nýliðasamningur hans átti að renna út í sumar og var honum óvænt skipt til San Francisco á miðju tímabili fyrir valrétt í annarri umferð nýliðavalsins. Frisco-liðið þakkaði pent fyrir sig og vann síðustu fimm leiki tímabilsins með Jimmy G í brúnni.

Framkvæmdastjóri og þjálfari 49ers voru sannfærðir; Garoppolo er framtíðin. Því var gerður þessi ofursamningur við strákinn þrátt fyrir að hann hefur ekki einu sinni spilað samtals hálfa leiktíð í NFL-deildinni.

Jimmy Garoppolo fær nú töluvert meira borgað en Tom Brady sem er 15. launahæsti leikmaður deildarinnar með rétt ríflega 20 milljónir dollara í árslaun.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×