Lífið

Borðuðu eldheita kartöfluflögu í beinni og viðbrögðin voru mjög misjöfn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þetta kallar maður rúst.
Þetta kallar maður rúst.
Sterkur matur fer misvel í fólk og mátti glögglega sjá það í beinni útsendingu í morgunþætti á sjónvarpsstöðinni CBS Philadelphia News í vikunni.

Þá tóku tveir fréttamenn þátt í áskoruninni One Chip Challange, en hún gengur út á að fólk fær sér eina eldheita kartöfluflögu.

Keppnin milli fréttamannanna gekk út á það hvor þeirra stæði sig betur í áskoruninni. Það var nokkuð augljóst en konan hreinlega niðurlægði karlmanninn í keppninni.

Hér að neðan má sjá hvernig þessi áskorun fór fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×