Lífið

Stórkostleg viðbrögð þegar 98 ára maður fær að heyra hvað hann er gamall

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessi maður er 98 ára. Hann hélt á tímabili að hann væri áttræður.
Þessi maður er 98 ára. Hann hélt á tímabili að hann væri áttræður.
Þessi eldri maður er ekki alveg með það á hreinu hversu gamall hann er. Barnabarn hans mætti á dögunum í heimsókn og tilkynnti afa sínum að hann væri 98 ára.

Maðurinn var með það á hreinu að hann væri fæddur árið 1919 en það vafðist greinilega fyrir honum hversu gamall hann væri í raun og veru orðinn.

Myndband af viðbrögðum hans eru að slá í gegn á Reddit í dag en þessi eldri maður lætur grjóthörð blótsyrði falla þegar það kemur í ljós að hann er í 98 ára, að verða 99 ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×