Körfubolti

Sterkur sigur hjá Jakob og félögum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Jakob Örn Sigurðarson.
Jakob Örn Sigurðarson. Vísir/Anton
Borås vann mjög sterkan sigur á næst efsta liði sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta í kvöld.

Borås tók á móti Norrköping Dolphins á heimavelli sínum í kvöld og fyrir leikinn munaði átta stigum á liðunum, Norrköping í öðru sæti og Borås í því fjórða.

Heimamenn settu hins vegar tóninn í fyrsta leikhluta sem þeir unnu 18-8. Það má í raun segja að þessi leikhluti hafi skilað sigrinum fyrir þá því næstu þrír voru allir mjög jafnir. Lokatölur urðu 65-57.

Jakob Örn Sigurðarson spilaði tæpan hálftíma í liði Borås, setti niður 12 stig og var næst stigahæstur ásamt því að taka 6 fráköst.

Borås fer með sigrinum upp í þriðja sætið og saxaði á forskot toppliðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×