Viðskipti innlent

Bein útsending: Fjórða iðnbyltingin

Tinni Sveinsson skrifar
Fjöldi áhugaverðra erinda verður fluttur í dag.
Fjöldi áhugaverðra erinda verður fluttur í dag. Getty
Félag atvinnurekenda efnir til opins fundar á undan aðalfundi félagsins á Nauthóli. Umræðuefnið er fjórða iðnbyltingin svokallaða. Fundurinn er í beinni útsendingu sem hægt er að horfa á hér fyrir neðan.

Aukin sjálfvirkni, vélmenni og gervigreind taka yfir æ fleiri hefðbundin störf og tækniþróun umbyltir mörgum atvinnugreinum. Í því felast bæði tækifæri og áskoranir. Umræðufundurinn hefst klukkan 14 en aðalfundur hefst að honum loknum, klukkan 16.15.

Dagskrá:

14.00  Fundur settur – Elín Helga Sveinbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Hvíta hússins, fundarstjóri

14.05  Ávarp ráðherra – Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra

14.15  Vöruhús framtíðarinnar – Heimir Guðmundsson, vöruhúsastjóri Innness

14.35  Róbótarnir eru komnir í bjórinn – Margrét Arnardóttir, framkvæmdastjóri tæknisviðs Ölgerðarinnar

14.55  Menntun fyrir atvinnulíf fjórðu iðnbyltingarinnar – Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík

15.15 Stjórnandinn á tímum fjórðu iðnbyltingarinnar – Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent í stjórnun og leiðtogafræðum hjá Háskóla Íslands

15.35  Félagsskapur fyrir framtíðina: Stefnumótunarverkefni FA – Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA






Fleiri fréttir

Sjá meira


×