Viðskipti erlent

Rannsaka fyrirtæki sem selur falska fylgjendur á Twitter

Kjartan Kjartansson skrifar
Gervigreindarforrit á samfélagsmiðlum eins og Twitter geta fylgt notendum, endurtíst og jafnvel tíst svörum.
Gervigreindarforrit á samfélagsmiðlum eins og Twitter geta fylgt notendum, endurtíst og jafnvel tíst svörum. Vísir/AFP
Þekktir Twitter-notendur hafa tapað meira en milljón fylgjenda á samfélagsmiðlinum undanfarna daga. Yfirvöld í Bandaríkjunum rannsaka nú fyrirtæki sem selur fylgjendur sem hafa í flestum tilfellum reynst vera gervigreindarforrit (e. bot).

Stjórnendur Twitter gripu til aðgerða gegn fyrirtækinu Devumi eftir að New York Times fjallaði um starfsemi þess um helgina. Í umfjöllun blaðsins kom fram að fyrirtækið standi í umfangsmikilli sölu á gervifylgjendum á Twitter og fleiri samfélagsmiðlum.

New York Times komst að því að fyrirtækið hefði í mörgum tilfellum afritað upplýsingar um raunverulega notendur og notað þær fyrir botta sem það selur sem fylgjendur.

Rannsaka fyrirtækið í tveimur ríkjum

Reglur Twitter banna kaup á fylgjendum. Talsmaður fyrirtækisins svarar ekki hvort að það sé byrjað að hreinsa út gervireikninga. Frægir einstaklingar hafa tilkynnt að þeir hafi tapað fjölda fylgjenda, þar á meðal söngvarinn Clay Aiken og leikarinn John Leguizamo auk stjórnarkonu í Twitter.

Formenn neytendaverndarnefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings hafa beðið Samkeppniseftirlit Bandaríkjanna um að rannsaka starfsemi Devumi og annarra slíkra fyrirtækja. Fyrirtækið lofar „100% virkum, enskum fylgjendum“ en í reynd eru nær allir fylgjendurnir sem það selur gervinotendur

Þá rannsakar dómsmálaráðherra Flórídaríkis starfsemi Devumi og starfsbróðir hans í New York kannar hvort að fyrirtækið hafi brotið lög þar. Devumi var með höfuðstöðvar sínar í Flórída þar til sagt var frá starfsemi þess. Það er sagt hafa fært sig um set til Colorado síðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×