Körfubolti

Fyrrum NBA stjarna lést í bílslysi

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Butler spilaði fyrir átta félög á ferlinum í NBA deildinni
Butler spilaði fyrir átta félög á ferlinum í NBA deildinni Vísir/Getty
Fyrrum NBA leikmaðurinn Rasual Butler er látinn aðeins 38 ára að aldri. Hann lést í bílslysi ásamt konu sinni Leah LaBelle.

Samkvæmt réttarmeinafræðingi í Los Angeles missti Butler stjórn á Range Rover bifreið sinni í nótt, aðfaranótt miðvikudags, með þeim afleiðingum að bifreiðin skall á vegg og velti yfir á toppinn.

Butler spilaði fyrir lið Miami Heat og þrátt fyrir að hafa ekki náð að verða að stórstjörnu þá átti hann 13 ár í NBA deildinni og var þekktur fyrir að vera mjög duglegur leikmaður.

Eiginkona Butler var söngkona sem tók meðal annars þátt í einni af fyrstu þáttaröðum bandaríska Idolsins þar sem hún lenti í 12. sæti.

Félagar hans hafa sent samúðarkveðjur sínar í dag, þar á meðan Dwayne Wade, en þeir spiluðu saman í Miami.



 





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×