Viðskipti innlent

Hættir sem yfirritstjóri Birtíngs eftir mánuð í starfi

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Helga var áður umsjónarmaður Kastljóss.
Helga var áður umsjónarmaður Kastljóss. Vísir/Valli
Helga Arnardóttir er hætt sem yfirritstjóri Birtíngs. Helga hóf störf þann 2. janúar síðastliðinn. Birtíngur gefur út tímaritin Hús og híbýli, Gestgjafann, Vikuna og fríblaðið Mannlíf.

Á vef Mannlífs segir að Helga hafi nýlega hafið störf hjá útgáfunni en að hún og stjórn félagsins hafi komist að samkomulagi um starfslok hennar. Ákvörðunin hafi verið sameiginleg og er Helgu þakkað fyrir samstarfið.

Helga var áður annar af umsjónarmönnum Kastljóss hjá RÚV frá árinu 2014. Hún hætti hjá RÚV í desember til að taka við störfum hjá Birtíngi. Þá var það tilkynnt að Helga myndi ritstýra Mannlífi og hafa yfirumsjón með áframhaldandi stafrænni uppbyggingu.

Átti að leiða aukið samstarf ritstjórna

Fram kom að Helga myndistarfa náið með núverandi ritstjórum tímarita Birtíngs, leiða aukið samstarf ritstjórna og marka ritstjórnarstefnu Mannlífs og mannlif.is.

„Ég hlakka til að hefja störf hjá Birtíngi og lít á það sem mikla áskorun að takast á við prentmiðla á þessum tímum og finna þeim tryggan farveg í síbreytilegu fjölmiðlaumhverfi,“ sagði Helga. 

„Það verður spennandi verkefni að leiða nokkur af vinsælustu tímaritum landsins inn á nýjar brautir í hinum stafræna heimi og koma með ferskt fríblað mánaðarlega um brýn samfélagsmál, sem varða okkur öll og málefni líðandi stundar.”

Birtíngur opnaði nýverið lífstílsvefinn mannlif.is, sameiginlegan vef allra miðla félagsins, en Lilja Katrín Gunnarsdóttir hefur verið ráðin til starfa á vefnum. 

Hætti í Kastljósi

Helga starfaði áður í fréttaskýringaþættinum Kastljósi hjá Ríkisútvarpinu frá árinu 2014, og auk þess hefur hún framleitt og haft umsjón með heimildarþættinum Meinsærið um rangar sakargiftir í Geirfinnsmálinu og fjögurra þáttaröð um leikferil Eddu Björgvinsdóttur leikkonu.

Helga starfaði í 7 ár á Stöð 2 sem fréttamaður í sjónvarpi og útvarpi, vaktstjóri, fréttaþulur og dagskrárgerðarmaður í Íslandi í dag. Á Stöð 2 hafði hún umsjón með þáttunum um Guðmundar- og Geirfinnsmálið, Mannshvörf á Íslandi og Óupplýst lögreglumál.

Hún hefur starfað við blaðamennsku allt frá árinu 2002 og hóf störf sem fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu 2004, þar til hún gekk til liðs við Stöð 2. Hún hlaut MA gráðu í International Journalism frá City University of London árið 2010 með áherslu á sjónvarps-og rannsóknarblaðamennsku. Hún er með BA gráðu í stjórnmálafræði og frönsku frá Háskóla Íslands og stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×