Körfubolti

San Antonio Spurs tapaði fyrir Toronto Raptors

Úr leik Lakers og Pacers.
Úr leik Lakers og Pacers. vísir/getty
Jordan Clarkson skoraði 33 stig í sigri LA Lakers í nótt er liðið bar sigurorð á Indiana Pacers.

Viðureign Pacers og Lakers var ein sjö viðureigna sem fór fram í nótt en það voru gestirnir frá Indiana sem byrjuðu leikinn betur og voru yfir 25-18 eftir 1.leikhluta. Eftir það tók Lakers við sér og skoraði 29 stig í 2.leikhluta.

Lakers hélt forystunni út leikinn og vann að lokum sigur 99-86.

San Antonio Spurs mætti Toronto Raptors í Toronto þar sem heimamenn fóru með sigur af hólmi 86-83. LaMarcus Aldridge var stigahæstur í liði Spurs með 17 stig á meðan Kyle Lowry var stigahæstur fyrir heimamenn og stigahæstur í leiknum með 24 stig.

Úrslit næturinnar:

Raptors 86-83 Spurs

Nets 103-95 Heat

Pistons 112-122 Wizards

Grizzlies 106-88 Kings

Nuggets 100-108 Suns

Jazz 115-117 Knicks

Lakers 99-86 Pacers

Hér fyrir neðan má sjá brot úr leik Toronto Raptors og San Antonio Spurs.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×