Enski boltinn

Zorc: Aubameyang er í okkar framtíðarplönum

Dagur Lárusson skrifar
Aubameyang er í framtíðarplönum Dortmund samkvæmt Zorc.
Aubameyang er í framtíðarplönum Dortmund samkvæmt Zorc. vísir/getty
Yfirmaður knattspyrnumála hjá Dortmund, Michael Zorc, segir að fréttir þess efnis að Pierre-Emerick Aubameyang sé á leið frá félaginu til Arsenal séu bull.

Aubameyang hefur mikið verið orðaður við för til Arsenal í janúar og er sjálfur sagður vilja fara til Arsenal en Zorc hefur nú blásið á þær sögusagnir og segir að Aubameyang sé í framtíðarplönum liðsins.

„Við sjáum Aubameyang í okkar framtíðarplönum. Hann getur komið aftur í liðið en þá verður hann að sýna kurteisi og háttvísi og biðjast afsökunar.“

„Við erum ekki með nein tilboð frá Arsenal, allar þessar sögusagnir eru bull.“

Þessi ummæli Zorc koma í framhaldi af ummælum hans fyrr í vikunni þar sem hann sagði að Wenger sýndi mikla vanvirðingu að tala um Aubameyang á fréttamannafundi sínum og hann ætti frekar að einbeita sér að sínum eigin leikmönnum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×