Erlent

Ellefu létust í rútuslysi í Tyrklandi

Ingvar Þór Björnsson skrifar
Rútan var á leiðinni frá Ankara til skíðasvæðis í Uludag.
Rútan var á leiðinni frá Ankara til skíðasvæðis í Uludag. Vísir/AFP
Ellefu létust og 46 slösuðust í rútuslysi í Tyrklandi í dag. Í rútunni voru fjölskyldur á leiðinni í skólaferðalag. BBC greinir frá.

Rútan var á leiðinni frá Ankara til skíðasvæðis í Uludag nálægt borginni Bursa. Rútan lenti á trjám en ökumennirnir, sem meiddust ekki alvarlega, hafa verið handteknir. Rannsókn er hafin á tildrögum slyssins. 

Vegaöryggi er ábótavant víða í Tyrklandi en rúmlega milljón umferðarslys voru í landinu árið 2016 og 7.300 banaslys. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×