Innlent

Félagarnir í Latabæ koma sér fyrir í Hveragerði

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Leikfélag Hveragerðis er á meðal bestu áhugaleikfélaga landsins.
Leikfélag Hveragerðis er á meðal bestu áhugaleikfélaga landsins. Vísir/Magnús Hlynur Hreiðarsson
Glanni glæpur, íþróttaálfurinn, Solla stirða, Maggi mjói og Halla hrekkjusvín úr Latabæ hafa komið sér vel fyrir í Hveragerði því þau verða Þar næstu vikurnar. Ástæðan er sú að Leikfélag Hveragerðis frumsýndi verkið í dag. Tvíburasystur leika íþróttaálfinn og Magga mjóa.

Leikfélag Hveragerðis er eitt af allra öflugustu áhugaleikfélögum landsins. Félagið sem fagnaði 70 ára afmæli sínu á síðasta ári hefur verið mjög duglegt að setja upp barnaleikrit. Nú er það Glanni glæpur í Latabæ.

„Það er viss áskorun að setja upp svona verk sem allir þekkja. Það er bara gaman að sjá þennan stórkostlega hóp koma því til skila,“ segir Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson sem leikstýrir verkinu.

Hrefna Ósk fer með hlutverk íþróttaálfsins og Elín Hrönn leikur Magga mjóa.Vísir/Magnús Hlynur Hreiðarsson
Tvíburasysturnar Hrefna Ósk og Elín Hrönn eru í stórum hlutverkum því þær leika íþróttaálfinn og Magga mjóa. Þær segjast finna sig vel á sviðinu. Var erfitt að æfa fyrir þetta leikrit?

„Mjög svipað og flest önnur, þetta náttúrulega krefst mikillar skuldbindingar,“ segir Elín Hrönn Jónsdóttir en Hrefna Ósk, systir hennar sem fer með hlutverk íþróttaálfsins, skýtur inn í um hæl: „og hreyfingar!.“ Elín segir þá með góðlátlegum tóni að Hrefna hefði aðeins þurft að æfa sig.

En af hverju ætti fólki að leggja leið sína í Hveragerði til að sjá leikritið ?

„Þetta er ótrúlega flott sýning og klassísk saga. Það þekkja allir Latabæ og það er góður boðskapur. Ég er komin til að lífga Magga mjóa við aftur því honum var hent út úr þáttunum. Ég er komin til að lífga hann við,“ segja systurnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×