Fótbolti

Coutinho ekki með Barca í dag - Gæti byrjað á grannaslag

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Philippe Coutinho
Philippe Coutinho Vísir/Getty
Philippe Coutinho er ekki í leikmannahópi Barcelona fyrir leikinn gegn Real Betis í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld en stuðningsmenn félagsins er farið að lengja eftir því að sjá Brasilíumanninn knáa reima á sig takkaskóna á spænskri grundu.

„Mér finnst erfitt að negla niður ákveðna dagsetningu á því hvenær Coutinho spilar sinn fyrsta leik en honum gengur vel að vinna sig úr meiðslunum. Það er möguleiki að hann spili á fimmtudag,“ sagði Ernesto Valverde, stjóri Barcelona, á blaðamannafundi í gær.

Leikurinn sem um ræðir á fimmtudag er af stærri gerðinni en þá mætir Barcelona nágrönnum sínum í Espanyol í seinni viðureign liðanna í spænska bikarnum en Espanyol vann óvæntan 1-0 sigur í fyrri leiknum.

Coutinho lék 16 leiki fyrir Espanyol árið 2012 en hann var þá á láni hjá félaginu frá Inter Milan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×