Innlent

Óveður í aðsigi á Suðurlandi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Mjög slæmt ferðaveður verður á Suður- og Suðausturlandi í dag.
Mjög slæmt ferðaveður verður á Suður- og Suðausturlandi í dag. Vísir/Vilhelm
Gert er ráð fyrir staðbundnu óveðri í dag á Suður- og Suðausturlandi. Útlit er fyrir mjög slæmt ferðaveður á svæðinu í allan dag, að því er fram kemur á vef Veðurstofu Íslands.

Gular viðvaranir eru í gildi á Suður- og Suðausturlandi, undir Eyjafjöllum og sunnan Mýrdalsjökuls annars vegar og í Öræfum hins vegar. Gert er ráð fyrir austan meðalvindi 23-28 m/s, slyddu og snjókomu og mjög erfiðum akstursskilyrðum á svæðinu og meðfram ströndinni.

Á vef Vegagerðarinnar segir að búast megi við lokunum á vegum vegna óveðursins á Suðurlandi og verða viðvaranir veðurstofu í gildi þangað til annað kvöld hið minnsta.

Betri horfur í öðrum landshlutum

Veðurhorfur eru betri annars staðar á landinu og ekki er búist við úrkomu í dag. Þá bítur frostið áfram í kinnar norðantil en hiti fer upp fyrir frostmark í lægðinni fyrir sunnan.

Þá er búist við því að víða hvessi á landinu á morgun og útlit fyrir austan hvassviðri eða storm á Suðurlandi auk þess sem hvessir á Norðurlandi með tilheyrandi úrkomu.

Veðurhorfur á landinu:

Vaxandi austanátt, 10-15 m/s síðdegis, en 20-25 syðst á landinu og með ströndinni að Öræfajökli. Hæg breytileg átt um landið NA-vert. Dálítil snjókoma eða slydda suðaustanlands, en skýjað og úrkomulítið í öðrum landshlutum. Hlýnar upp fyrir frostmark víða á sunnanverðu landinu, en frost 2 til 12 stig fyrir norðan.

Austan hvassviðri eða stormur á suðurhelmingi landsins á morgun og rigning, slydda eða snjókoma, hvessir einnig með úrkomu norðanlands undir kvöld.

Á mánudag:

Austan 13-20 m/s, en 20-25 syðst á landinu. Snjókoma með köflum og síðar rigning eða slydda og hiti 0 til 4 stig. Dálítil él norðantil á landinu, líkur á skafrenningi og vægt frost.

Á þriðjudag:

Austan 13-20, en mun hægari vindur sunnantil á landinu. Snjókoma eða slydda, talsverð úrkoma austanlands. Norðaustlægari um kvöldið og þá þurrt að kalla á Suður- og Vesturlandi. Hiti kringum frostmark.

Á miðvikudag:

Hvöss norðustanátt með snjókomu eða slyddu, en úrkomulítið sunnan heiða. Hiti nálægt frostmarki.

Á fimmtudag:

Minnkandi norðanátt og víða léttskýjað, en dálítil él norðanlands. Kólnandi veður.

Á föstudag:

Útlit fyrir suðaustan- og austanátt með dálítilli snjókomu eða slyddu sunnanlands, en bjartviðri norðantil á landinu.

Á laugardag:

Austlæg eða breytileg átt, úrkoma víða um land og hiti kringum frostmark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×