Fótbolti

Viðar Örn hjálpaði Maccabi Tel-Aviv að tylla sér á toppinn

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Viðar í leik með Maccabi.
Viðar í leik með Maccabi. vísir/afp
Viðar Örn Kjartansson var á sínum stað í fremstu víglínu Maccabi Tel-Aviv þegar liðið mætti Hapoel Ashkelon í ísraelsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Viðar Örn lék allan leikinn en tókst ekki að skora þrátt fyrir að liðið hafi unnið öruggan 3-1 sigur. Maccabi lenti reyndar undir snemma leiks en kom til baka og vann öruggan sigur.

Úrslitin þýða að Viðar og félagar eru á toppi deildarinnar með 41 stig, líkt og Hapoel Beer Sheva sem er í öðru sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×