Menning

Sindri Freysson hlýtur Ljóðstaf Jóns úr Vör

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Viðurkenningin var veitt við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi í dag.
Viðurkenningin var veitt við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi í dag.
Sindri Freysson fékk í dag afhentan Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóðið Kínversk stúlka les uppi á jökli. Þetta er í sautjánda sinn sem Lista- og menningarráð Kópavogs afhendir Ljóðstaf Jóns úr Vör. Viðurkenningin var veitt við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi af Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra og Karen E. Halldórsdóttur formanni Lista- og menningarráðs.

Efnt hefur verið til ljóðasamkeppninnar um Ljóðstaf Jóns úr Vör frá árinu 2002 og eru úrslit keppninnar tilkynnt á fæðingardegi skáldsins. Handhafi Ljóðstafsins fær farandgrip til varðveislu í eitt ár, verðlaunagrip til eignar og 300.000 króna peningaverðlaun. 200.000 kr. eru í verðlaun fyrir annað sætið og 100.000 fyrir það þriðja.

Alls bárust 278 ljóð í keppnina að þessu sinni. Í öðru sæti var Hrafnhildur Þórhallsdóttir með ljóð sitt Elegía en Valgerður Benediktsdóttir hlaut þriðja sætið fyrir ljóðið Íshvarf. Þá fengu átta ljóð viðurkenningar.

Rökstuðningur nefndarinnar fyrir vali sigurljóðsins er eftirfarandi:

Sindri Freysson hlýtur ljóðsstaf Jóns úr Vör árið 2018 fyrir ljóðið Kínversk stúlka les uppi á jökli. Í ljóðinu birtast skýrar myndir af óvenjulegum aðstæðum sem vöktu strax athygli dómnefndarfólks. Ljóðið kallar fram myndir af ólíkum heimum, andstæðum; borgarumhverfi, brautarpöllum og hraða er telft á móti kyrrstöðu sem ríkir á óskilgreindum jökli þar sem rúta situr föst. Ljóðið sýnir okkur sofandi farþega sem geta verið erlendir ferðamenn en aftast situr kínversk stúlka og les um lestargöng sem opnast og lokast. Þessar áleitnu myndir gefa færi á ýmsum túlkunarmöguleikum, minna á mátt ljóðsins, bókarinnar, lesturs og hugarflugs. Þetta er ljóð um ferðalag okkar allra, um lífið og dauðann en líka um möguleikana og kallast á við orð listaskálsins góða sem þakkaði fyrir það að geta setið á sama stað og verið samt að ferðast. Ef til vill má líka líta á ljóðið sem táknmynd fyrir samtíma okkar hér á Íslandi, rútan er föst á jökli og enginn veit hvað verður um farþegana; eina leiðin burt úr ógöngunum virðist vera lestur, skáldskapur.

Kínversk stúlka les uppi á jökli

Í þessu landi

leynast engir brautarpallar

með þokuskuggum að bíða tvífara sinna

Engar mystískar næturlestir 

sniglast gegnum myrkrið á hraða draumsins

Engir stálteinar syngja

fjarskanum saknaðaróð

Í þessu landi

situr rúta föst á jökli

Hrímgaðar rúður

Framljósaskíma að slokkna

Frosin hjól að sökkva

Andgufa sofandi farþega

setur upp draugaleikrit

Og á aftasta bekk

les kínversk stúlka

um lestargöng sem opnast og lokast

einsog svart blóm

Einnig voru tilkynnt úrslit í ljóðasamkeppni grunnskólanna í Kópavogi. Henrik Hermannsson hlaut þar fyrstu verðlaun fyrir ljóðið Myrkrið. Höfundur er nemandi í 7. bekk í Hörðuvallaskóla. Í öðru sæti var ljóðið Frelsi eftir Eyrúnu Flosadóttur. Hún er nemandi í 9. MSJ í Kársnesskóla. Ljóðið Allt eða ekkert eftir Söndru Diljá Kristinsdóttur var í þriðja sæti en Sandra er í 8. bekk Salaskóla. Vinningsljóðum grunnskólanema verður dreift um bæinn á veggspjöldum og bókamerkjum.

Þá hlutu átta ljóð viðurkenningar dómnefndar:

Halla Oddný Magnúsdóttir hlýtur viðurkenningu fyrir ljóðið Ástaljóð frá Alexandríu

Sindri Freysson hlýtur viðurkenningar fyrir ljóðin Ekkert að óttast og Vikumenn

Hallgrímur Helgason hlýtur viðurkenningar fyrir ljóðin Ég og hún og Portúgölsk pera

Eyþór Gylfason hlýtur viðurkenningu fyrir ljóðið Hvítt suð

Pedro Gunnlaugur Garcia hlýtur viðurkenningu fyrir ljóðið Leikbrúður

Margrét Hlín Sveinsdóttir hlýtur viðurkenningu fyrir ljóðið Postulínshundurinn

Steinunn Lilja Emilsdóttir hlýtur viðurkenningu fyrir ljóðið Vitleysa

Ásgeir H Ingólfsson hlýtur viðurkenningu fyrir ljóðið Þeir skjóta þig alltaf í bakið

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×