Lífið

Zac Efron birtir fyrstu myndina af sér sem Ted Bundy.

Stefán Árni Pálsson skrifar
Efron er hér til vinstri og Bundy má sjá til hægri.
Efron er hér til vinstri og Bundy má sjá til hægri.
Leikarinn Zac Efron hefur nú birt fyrstu myndina af sér sem raðmorðinginn Ted Bundy.

Bundy er einhver þekktasti raðmorðingi sögunnar en hann mun hafa myrt um þrátíu manns á áttunda áratugi síðustu aldar.

Efron mun fara með hlutverk Bundy í kvikmynd sem ber nafnið Extremely Wicked, Shockingly Evil and Vile.

Ekki er ljóst hvenær kvikmyndin verður frumsýnd en leikarinn deilir myndinni af sér á Twitter og virðist hann smellpassa í hlutverkið. Bundy var tekinn af lífi í Bandaríkjunum árið 1989 eftir að hafa fengið dauðadóm.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×