Innlent

Strætó fauk út af veginum á Kjalarnesi

Birgir Olgeirsson skrifar
Strætó fauk út af veginum um Kjalarnes á öðrum tímanum í dag. Tíu voru um borð í strætisvagninum þegar hann fauk út af en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru nokkrir slasaðir en þó ekki alvarlega. Var strætisvagninn nýkominn út úr Hvalfjarðargöngunum þegar hann fauk út af.

Vont veður er á vettvangi og eru viðbragðsaðilar á leið á vettvang.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands var austan átt á Kjalarnesi klukkan eitt í dag. Var meðalvindhraði um átján metrar á sekúndu en öflugasta hviðan náði 27 metrum á sekúndu.

Fréttin hefur verið uppfærð en í fyrstu útgáfu var talað um rútu í stað strætisvagns.

Var strætisvagninn nýkominn út úr Hvalfjarðargöngunum þegar hann fauk út af. Vísir/Vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×