Fótbolti

Orri Sigurður kominn til Noregs

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Orri Sigurður Ómarsson
Orri Sigurður Ómarsson mynd/sarpsborg
Orri Sigurður Ómarsson er genginn til liðs við norska félagið Sarpsborg, en greint var frá því fyrir helgi að Valur væri búinn að komast að samkomulagi við Sarpsborg um kaup á miðverðinum.

Samningurinn er til þriggja ára, en hinn 22 ára Orri varð Íslandsmeistari með Val í fyrra og var í íslenska landsliðshópnum sem ferðaðist til Indónesíu nú í janúar.

„Þetta er gott félag sem spilar góðan fótbolta. Ég hlakka til að leggja mig allan fram í hverjum einasta leik,“ sagði Orri við heimasíðu norska félagsins.

Íþróttastjóri félagsins sagði Orra vera besta varnarmanninn í íslensku deildinni í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×